31.07.2008 17:59:03 / asdis
Baunin okkar skaust í heiminn síðastliðinn sunnudag og er vægast sagt fullkomin 
Það er hægt að sjá hana á síðunni hans Adda og svo á heimasíðunni hennar: barnanet.is/sudurgata13 - endilega sendið Adda póst til að fá aðgang: arntorgustavs@gmail.comAnnars erum við mæðgur að hafa það huggulegt á sjúkrahúsinu á króknum og stefnum að því að fara heim á morgunn
»
16.07.2008 15:19:24 / asdis
Enn er allt við það sama í netmálum heimilisins. Þetta strandar nú samt eiginlega allt á því að tölvuherbergið er gólfefnalaust en það er unnið í þeim málum og eftir það verður athugað með nettengingu
.
Við hjónin skruppum á Akureyri að láta líta á bumbuna á mánudaginn - eða pappírana um bumbuna öllu heldur ! Vegna bakmeiðsla minna en það var allt í góðu. Gerðum stórinnkaup í leiðinni, rúmfó, bónus, hagkaup og allt það....
Læt þetta næja í bili ! Er komin í netsamband til að líta á parket 
»
25.06.2008 10:24:33 / asdis
Nú er ekki nema tæp vika í að við fáum húsið afhent - ef ekkert klikkar.... Vá hvað ég hlakka til
Næsta þriðjudag verður húsið vonandi okkar
. Best að ég minni ykkur aðeins á hvað það er flott....

Þyrfti nú að gera mér ferð og ná sumarmynd af húsinu, risa tré og fínerí í garðinum - svo ekki sé nú minnst á matjurtargarðinn okkar. Kartöflur, kál, gulrætur og ég veit ekki hvað og hvað !
»
06.06.2008 23:52:50 / asdis
Þá er ég komin heim í heiða dalinn !!! Hahaha... Hafði það mjög gott í Stykkis en það er líka gott að vera komin heim til bóndans. Nú er bara að fara á fullt að pakka.
Hvern langar ekki að sjá ólétt jarðaber ?

Allavega vel þrútið á leiðinni í skrúðgöngu
og morgunmyglað...
Hef þetta ekki lengra í bili - er að fara að þvo barnaföt !
»
21.05.2008 13:12:01 / asdis
Að hugsa sér, fyrsti veturinn er að verða búinn.... Hann hefur alveg flogið hjá. Núna er bara allt á fullu í lokafrágangi og sveitaferð á morgunn
. Ég á eftir að kveðja krakkana með tárin í augunum...
Annars allt við það sama. Leikhúsferli mínum lokið að sinni og nú er bara að huga að því að pakka niður búslóðinni ! Og hafa það huggulegt auðvitað
.
Best að halda áfram !
»
10.05.2008 14:43:39 / asdis

Verið að ræða snið og hugmyndir - svo einbeittar !

Gestir ! Það var sko gaman að fá gesti - þrátt fyrir heilsuleysi mitt síðustu daga...

Ég held það sé nokkuð ljóst að ég vinni þessa bumbukeppni !!!
»
25.04.2008 10:48:46 / asdis
Júhú !
Við eigum von á gestum
! Alltaf gaman þegar einhver bregður sér norður í land. Olga, Drífa og María mæta 2. maí og það er aldrei að vita nema Heiður og Jói sláist í hópinn - bíst við að Addi myndi fagna því ! Annars verður þetta bara alger stelpuhelgi !
»
19.04.2008 19:25:28 / asdis
sunnud. 27. apr - frumsýning 20:30
þriðjud. 29. apríl 20:30
miðvikud. 30 apríl 20:30
fimmtud. 1. maí 17:00
föstud. 2. maí 20:30
laugard. 3. mái 15:00
þriðjud. 6. maí 20:30
miðvikud. 7. maí 20:30
fimmtud. 8 maí 20:30
föstud. 9. maí 20:30
mánud. 12. maí (Annar í hvítasunnu) 15:00
Hvert foru islensku stafirnir 
»
Síður:
1 2 3 ...
10